Kana lætur lítið yfir sér, staðsett í eins konar bakgarði í útjaðri miðbæjar Kuta. Á lóðinni við hliðina eru nautgripir á beit, svo og hæsn. Látlaus glæsileiki er áberandi, þegar inn er komið, allt hreint og fágað. Ljómandi góður veitingastaður inn af anddyri og móttöku býður svöngum gestum saðningu. Staðurinn er opinn út til myndarlegrar sundlaugar og veitingar bornar út, ef svo ber undir. Hótelið er kyrrlátt og hljóðlátt, enginn umferðarniður. Starfsmenn eru perlur, stimamjúkir, en umfram allt elskulegir. Móttakan hefur milligöngu um alls konar ferðir með notalegum (einka)bílstjóra. Það er um tuttugu mínútna rölt niður á strönd. “Miðtorgið” er u.þ.b. miðsvegar til vinstri á leið niður eftir. Leigubíll (Blue bird) kostar um 70.000 Rúpur.